Steinunnarblogg!!
JæjaaaaSteinunn Eðvaldsdóttir
Jæja ætla aðeins að blogga:)Árshátíðin var bara æði! Reyndar soldið sein að tala um hana haha! En jæja ég bara bjó hjá Írisi þessa helgi og byrjaði laugardagurinn á því að ég fór í leik með bekknum sem gekk út á það að skipt var í lið og átti hvert lið að vera á einum bíl og fékk hvert lið búininga..:) Svo fengum við einnota myndavél og áttum að taka mynd af ýmsum skrítnum hlutum, t.d. manni berum að ofan, okkur að hjálpa gamalli konu yfir götu, ljótum ketti, frægum manni og fleiru! Þetta var alveg ótrúlega fyndið og gaman..:) Svo í seinni lotunni áttum við að ná í ýmsa asnalega hluti útum allan bæ!:) Mitt lið var svo í öðru sæti og fengum við páskaegg nr. 4 hver! Sem ég er by the way búin með ! hehe.. Já svo var fyrirpartý hjá henni Bergþóru sem var bara snilld! Ég uppgötvaði reyndar þegar ég var að leggja af stað þangað að ég hafði gleymt árshátíðarmiðanum mínum í Keflavík ! og fékk nett panik kast! En ég hringdi í Láru Bettý í stjórninni sem reddaði þessu fyrir mig! :) Ég var víst ekki ein um að hafa gleymt miðanum minum, við vorum allavega 7 í bekknum, algjörir kjánar! Svo var árshátíðin æði, maturinn ótrúlega góður og mikið dansað og jú Björgvin Franz veislustjóri og hann er algjör snillingur! Svo var líka svo gaman hvað allir voru finir:) Myndir á myspacinu mínu, www.myspace.com/steinunn_87:) Já eftir árshátíðina fór ég með Bergþóru niðrí bæ á Vegamót, staður sem ég hef aldrei komið inn á áður! En shitt, var buin að vera á támjóu pinnahælunum mínum í 12 tíma þegar ég loksins fór heim og var ég að drepast og nýttum við Bergþóra okkur hvert tækifæri til að fara úr skónum hvar sem við komum! hehe.. eins gott að ég steig ekki á glerbrot!
Een svo var ég ekki mjög hress á sunnudaginn.. hehe..
Fór heim seinustu helgi sem var alveg ágætt bara.. var að gera viðtalverkefni fyrir skólann og tók viðtal við hana mömmu litlu, sem var nú frekar spaugilegt hehe...:) Svo hitti maður allt fólkið sitt sem var ótrúlega gott.. fór svo líka í jarðaför á sunnudaginn.. hjá systur hans afa.
Skilaði í gær tveim stórum verkefnum sem giltu 40% samtals í sama áfanganum! Ekkert smá gott að vera búin að skila þeim.. þetta var búið að liggja á manni ansi lengi.. Ég var að læra til um hálf 4 nóttina áður og mætti svo í skólann hehh! Ekki mjög hress.. enda svaf ég síðan frá 5-11 um kvöldið þegar ég kom heim! og var ekki að takast að fara að sofa snemma í gær.. en það var allt í góðu:)
Jæja er að hugsa um að skella mér í ræktina! Vaknaði kl hálf tíu í morgun og búin að vera með tiltektaræði! Ætla svo að reyna að vera dugleg að læra um helgina.. ætli þetta verði ekki bara letihelgi;)
Já það er sko snjór úti!Steinunn Eðvaldsdóttir
Nú sit ég föst heima hjá mér því rútan kom ekkert, sennilega vegna þess að það eru skaflar á veginum! hehh
en Eyþór ætlar að reyna að komast kl. 8 , vona að það reddist! úfff.. þetta er nú búinn að vera meiri snjórinnEn vá! hvað var gaman á þorrablótinu! Ekkert smá gaman að skemmta sér með þessum kreisí Skagfirðingum hehe! Ég verð nú að viðurkenna að mér leiddist nú bara meðan skemmtiatriðin voru, skildi náttla ekki neitt! En maturinn var góður og ballið líka! og ekkert smá gaman að hitta allt þetta fólk sem ég hef ekki hitt alltof lengi, eins og tengdóið og Kidduna! Og auðvitað var farið í kokkinn!
svo hitti ég líka soldið af gömlum skólafélögum af króknum, sem var mjög gaman
Eftir ballið var stuðið svo ekki búið því við þurftum að skemmta okkur meira! Það var eftirpartý heima hjá Guðný og Palla sem við gistum hjá og vorum við Guðný og Palla að syngja hástöfum og Palli spilaði á gítar, elska svona partý! Vá ég var líka komin í einhverja þörf fyrir að syngja, missti mig þarna! Saknaði þess ekkert smá að vera að æfa.. Og sakna Elfu söngkennara!
Verklega prófið í heilbrigðismati gekk bara ógeðslega vel, allavega sagði kennarinn að þetta hefði verið stórglæsilegt
ég er helvíti ánægð með það! Annars fannst mér þetta ekkert fulkomið hjá mér, en þetta var allavega nógu gott fyrir hana!, var ekkert smá stressuð fyrst, var bara eitthvað uuu... Hélt líka að hún yrði geggjað ströng á þessu en hún var bara geggjað líbó!Á morgun er árshátíð hjá hjúkrunarfræðideildinni sem verður án efa mjög gaman!
Fyrir árshátíðina á svo að vera einhver leikur hjá bekknum okkar, sem er eitthvað voða mikið leyndó, en örugglega rosa fjör! Svo á að vera fyrirpartý hjá einni bekkjarsystur og svo árshátíð
Júlli og Eyþór ætla að reyna að komast norður, þeir báðir að fara á þorrablót.. Eyþór á Hvammstanga .. sem ég missi af því miður
og Júlli á Hólum, aðra helgina í röð sem hann fer á þorrablót í Skagafirði, ekkert smá trylltur! hehe
En jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra..
Jæææja!Steinunn Eðvaldsdóttir
Heyrðu maður verður víst að blogga fyrst það er verið að auglýsa síðuna manns á hjúkkublogginu!!Maður ætti kannski að fara að vera virkari í þessu;) Nenni þessu bara ekki !
En já síðan síðast hefur margt gerst!
Já prófin prófin, þau voru nú alltof mörg að mínu mati og var ég komin með upp í kok á þeim áður en þau voru búin! svo eftir síðasta prófið var skellt sér í kringluna að leggja lokahönd á jólagjafirnar og ætlunin var að kaupa sér föt fyrir jólin, en fann ekki neitt! komst síðan að því að ég átti nóg af fötum, keypti nebbla svo mikið á Spáni sem ég hef nú ekki notað einu sinni allt! Síðan var brunað norður á Hvammstanga með mömmu og pabbanum og komið við á Akranesi þar sem var skipst á jólagjöfum, og eruði að grínast hvað ég fékk stóran pakka frá Júlla! Mömmu og pabba leist ekkert á blikuna og héldu án djóks að hann kæmist ekki fyrir í bílnum, en það hafðist á endanum;) Svo var brunað heim og ég alveg búin á því eftir prófin og var bara farið snemma að sofa, enda vinna kl 8 morguninn eftir! Það voru bara læti í kellu! Enda var ég spurð hvort ég ætlaði að drepa mig á þessu!
Það var voða gott að byrja að vinna aftur á sjúkrahúsinu og var maður ekki lengi að rifja upp hvernig maður átti að gera allt saman, hlakka til að fara þangað í sumar, svo gott fólk þarna:)
Jólin voru yndisleg, það var mikið unnið, borðað , fengið góðar og skemmtilegar gjafir og hitt vini og fjölskyldu:)
Svo komu áramót og þá skelltum við stelpurnar okkur á ball, sem var helvíti gaman!
Svo fékk maður loksins útúr prófunum daginn fyrir fyrsta skóladaginn ! og ég var rosa glöð með útkomuna, var búin að vera soldið stressuð yfir þessu, sérstaklega að þurfa að bíða svona lengi .. en svo gekk allt bara mjög vel og ég náði öllu og var meira segja mjög framarlega á listanum:)
Skólinn byrjaði svo 11. jan og mikið rosalega er þetta gaman! Hafði ekki órað fyrir því hvað þetta gæti verið skemmtilegt, erum byrjð að læra núna miklu meira svona sem tengist starfinu okkar og fara í verklegt nám, ekki á stofnanir sko heldur bara svona niðri í verknámsstofu, æfa okkur að taka blóðþrýsting upp á gamla mátann, sem er erfiðara en það virðist vera hehe.. banka og þreifa og hlusta og fleira:) Nú sér maður hvað fyrri önnin var mikið prump! við eitthvað ein þarna í útlegð í valsheimilinu og gerðum ekki annað en að hlusta á kennarann í fyrirlestrum! öss!
Svo fór ég í ógeðslega skemmtilega vísindaferð um daginn! fyrsta vísóið fyrir utan nýnemaferðina og það var ekkert smá gaman! kynntist líka fullt af skemmtilegum stelpum í henni og sonna;)
Það er líka búið að búa til hjúkkublogg fyrir bekkinn minn, www.hjukkur2011.bloggar.is :)
Er að fara á þorrablót á hofsósi næstu helgi og ég ætla sko að skemmta mér;)
En verð að drífa mig er að fara í verklegan aukatíma fyrir próf!;)
Siggalafó!Steinunn Eðvaldsdóttir
Hæhæ:)Mín alltaf rosa dugleg að læra bara:) Búin að læra eins og ég veit ekki hvað síðan í síðustu viku... enda þýðir ekkert annað í þessum blessaða skóla
Helgin var fín, gerði ýmislegt skemmtilegt í bland við lærdóminn.
Á föstudaginn fór ég á árshátíð Hrafnistu eins ég hef áður talað um, sem var bara rosa gaman! Hitta þar Sunnu mína og svo tengdóið góða og gömlu vinnufélagana :) Rosa gaman:) Maður var nú bara edrú og stilltur enda ætlaði ég að læra morguninn eftir og fór á djamm helgina áður. Maturinn var rosa góður, sjávarréttaforréttur, nautakjöt í aðalrétt og ís og súkkulaðikaka í eftirrétt umm:) Skemmtiatriðin voru ekki af verri endanum, en það var Björgvin Franz Gíslason sem sá um þau, rosa fyndinn og skemmtilegur og verð ég bara að segja að hann kom mér skemmtilega á óvart, ég hélt hann væri ekki svona sniðugt.. Svo kom kona sem var að syngja í The Tina Turner show og það var ekkert smá flott! Hún náði henni bara algjörlega og söng ekkert smá vel! svo endaði þetta á balli ..
Á laugardeginum var síðan lært, byrjaði reyndar ekki alveg eins snemma eins og ég ætlaði mér.. en só.. þurfti svo að ná í Júlla greyið í Rvk sem missti af rútunni hehe.. en það var bara fínt þar sem ég notaði tækifærið og heimsótti Tjörva og Berglindi og Sollu, allt í einni ferð;) Jú svo hitti ég Guðjón og Sunnuna.. :) Við Júlli ákváðum svo að hafa kósý kvöld saman og fórum út að borða á Fridays og leigðum okkur spólu og sonna;)
Í gær var maður bara að læra og sonna.. fór líka út að labba til að hressa mig við og fann eitt stykki skóla! er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt á þessar herstöð!
Svo eftir tvær vikur ætlum við að fara norður í afmæli til afa hans Júlla.. kannski maður kíki á Akranes og Hvammstanga í leiðinni;)
Jójójó!Steinunn Eðvaldsdóttir
Ég fór heim um helgina sem var æðislegt! :) Ekkert smá gott að koma heim og skipta aðeins um umhverfi.. var orðin eitthvað svo geðveikt hérna!! Lærði samt ekki eins mikið og ég ætlaði hehh..
En jæja hef svosem ekki mikið meira að segja nema bara að ég er að fara á árshátíð Hrafnistu á föstudaginn með Birnu tengdó og fleirum ! það verður án efa fjör , góður matur og skemmtilegt
og jú líka Erla amma á afmæli í dag! Til hamingju með afmælið amma! þó ég búist ekki við því að þú lesir bloggið mitt hehe..
og Hildur vinkona var að eignast rosa sætan strák sem var nefndur Sævar Þór, rosa sætur og flott nafn:) Til hamingju með hann Hildur! verð að kíkja á ykkur við tækifæri!!
En gott í bili..
Læt heyra í mér síðar
Fariði nú að kommenta fólk!
Jæja..Steinunn Eðvaldsdóttir
HæhæLangt síðan síðast.. það er vegna þess að það er búið að vera mjög mikið að gera..
Fór í sumarbústaðapartý þarseinustu helgi og alveg ótrúlega gaman! Rosa gaman að hitta krakkana aftur sem eg kynntist á Spáni, voru reyndar rosa margir þarna og ég þekkti bara lítinn hluta en það var samt gaman;)
Ég er hætt í háskólakórnum, komst að því að ég hef ekki tíma í þetta með náminu, allavega ekki á þessari önn.. ætla bara að einbeita mér að náminu og engu öðru núna.. þó maður verði náttla að stunda félagslífið eitthvað líka og fara út.. maður má ekki rotna..
Seinasta helgi var bara mjög róleg, ákvað að fara ekkert á laufskálaréttaballið og vera bara heima og læra.. svo komu Magnús og þau og það var voða gaman að fá þau..
Þessi vika er búin að vera ótrúlega þung og leiðinleg, ætla að fara heim núna um helgina og reyna að hressa aðeins upp á geðheilsuna.. hehh hljómar illa..:/
En jæja tíminn byrjaður!
Hæ hæ og hóhó!Steinunn Eðvaldsdóttir
Hæhæ og hóhó!
Í fréttum er þetta helst:
Það var fínt að fara heim um helgina.. fór samt ekkert í réttir einu sinni þó ég hafi farið heim til að fara í réttir! Glötuð gella ! hehe.. en málið var bara að ég nennti því ekki, enginn var að fara frá mínu heimili nema náttla þeir sem voru í göngum svo ég hélt mér bara heima.. fór ekki einu sinni á ball! Það var heldur engin af stelpunum heima.. Spes að koma heim og hitta enga af þeim! En ég var bara eitthvað heima að læra heilmikið og við mamma eitthvað að passa Ásdísi litlu sem er alltaf að stækka.. :P Mamma bakaði svo fullt af brauði og snúðum og köku sem var æði og fengum svo hangikjöt og góðan mat! og fékk ég brauð og snúða með mér til Kef. alveg ógó gott! Takk mamma!
Annars er ekkert sérstakt að frétta af mér, bara skóli skóli skóli... kór og læra og jú reyndar!
Ég er að fara í sumarbústaðapartý á laugardaginn! :)
Karen Ósk sem ég kynntist á Benidorm og bjó meira að segja á Hvammstanga í 1. bekk hehe.. bauð mér í sumarbústaðapartý í Úthlíð í Biskupstungum og ég ákvað bara að skella mér! Var reyndar fyrst eitthvað efins, fannst ég þurfa frekar að læra og sonna.. en ju auðvitað þarf ég að læra en maður verður nú að sletta úr klaufunum líka..;) Ég ætla að fara með Sonju sem var með þeim á Benidorm á laugardagskvöldið og ég hlakka ekkert smá til að hitta þau vinina aftur sem ég kynntist þarna úti og svo verða Dagrún og Árni Geir þarna vonandi líka!
Það var reyndar búið að bjóða mér í annað partý, eitthvað nýnemapartý með kórnum sem er á laugardaginn líka sem við eigum víst að mæta í! en mig langar bara meira að hitta stelpurnar svo ég ætla að beila á því! Maður getur víst ekki verið á tveim stöðum í einu! Bara að maður gæti klónað sig.. :P hehe
Svo eru Magnús og Ellen að spá í að heimsækja mig eftir viku ég bara jájá en sniðugt , svo sagði Júlli mér að þetta væri Laufskálaréttahelgin og ég bara ohh! af hverju þarf alltaf allt að gerast á sama tíma! þoli ekki að þurfa að velja og hafna! En ég veit svo sem ekki hvort ég fari á ball, ef það fer engin af stelpunum er ekkert víst að ég fari.. en það er alltaf fjör á þessu balli!
En jæja segjum þetta gott í bili
Endilega kommenta;)
Kuldi og aftur kuldi!!Steinunn Eðvaldsdóttir
Hæhæ!
Veðrið er búið að vera leiðinlegt..
Skólinn gengur sinn vanagang..
Fór í raddprufu fyrir háskólakórinn í vikunni og komst inn, er sópran;) Fór á fystu æfinguna í gær og það var bara mjög gaman, held að þetta verði skemmtilegur vetur, vona bara að það verði ekki svo mikið að gera í skólanum að ég hafi ekki tíma:P Kynntist strax skemmtilegu fólki, t.d. er þarna par sem er með mér í bekk í hjúkrun og svo Helgi Rafn frændi og idolstjarna;) sem er by the way alveg eins og Óli Pálmi frændi sinn..
Fór svo á fyrirlestur um kvöldið með kunningjum úr hjúkrun sem 8 stelpur á þriðja ári voru að flytja. Þær fóru til Kenýja fyrr á árinu í sjálfboðastörf og voru þær að segja frá því.. Þetta var rosalega merkilegur og fróðlegur fyrirlestur og voru þær að sýna myndir og segja frá hvernig aðstæðurnar eru þarna og eru þær vægast sagt hræðilegar! Þetta vakti mann til umhugsunar um hvað maður getur gert til að hjálpa þessu aumingja fólki, eftir fyrirlesturinn langaði mig bara helst að fara til Kenýja og bjarga þessu öllu! En auðvitað er það ekki hægt, maður bjargar ekkert heiminum þó að margir hafi ætlað að gera það.. en auðvitað er eitthvað sem maður getur gert og svo miklu miklu meira sem fólk getur gert heldur en það gerir þó maður fari ekki endilega út og geri neitt rosa mikið! Ég dáist alveg að þessum stelpum og er þetta ekkert smá gott framtak sem þær fóru út í, þær fóru út á vegum Provide samtakanna og þurftu þær að sjá sjálfar um að safna öllum styrkjum en þetta er mjög dýrt að fara svona út.. En það er alveg ótrúlegt hvað fólk er langt á eftir þarna, er fáfrótt um hluti sem okkur finnst alveg sjálfsagt að vita. T.d. heldur fólk þarna í alvörunni að menn losni við alnæmi ef þeir sofi hjá hreinum meyjum! Ég meina það! Fólkið býr sumt bara í kofum, jafnvel 12 saman í pínulitlu rými, börnin sullandi í klóakinu sem rennur við hliðina á götunum, ungir strákar að sniffa lím, næstum allir með HIV og vá! Þeta er bara hræðilegt.. mér leið bara illa við að hlusta á þetta.. Þær héldu úti bloggsíðu meðan þær voru úti og ef þið viljið skoða þá er slóðin www.hjukrunikenya.blog.is
Svo eftir fyrirlesturinn þurfti ég að taka rútu til Keflavíkur, hafði misst af 9 rútunni svo ég þurfti að taka 11 rútuna sem ég hafði aldrei tekið áður. Ég fór niður í strætóskýli með Jökli og Jónu sem búa uppi á velli líka og við biðum þar í 35 mínútur! og aldrei kom rútan! við héldum bara að hún hefði bara ákveðið að koma ekkert þetta kvöld og vorum grautfúl og vorum farin að örvænta að við þyrftum að redda okkur gistingu í Rvk, það var ógeðslega kalt og við vorum að frjósa! en svo vorum við ekkert smá heppin að einhver vinur þeirra var á bíl á leið til Kef. og tók okkur með Guði sé lof! Við ætluðum svo að kvarta í Keili yfir því að rútan hafi ekki komið en svo kom Júlli bara með 11 rútunni og sagði að 11 rútan stoppaði aldrei við bóksöluna þar sem hún stoppaði alltaf heldur bara í BSÍ !!! og hvernig áttum við að vita það! Mér finnst þetta sko fáránlegt, þetta stendur hvergi og ekkret búið að láta okkur vita af þessu og við náttla gerðum ráð fyrir að hún stoppaði þar sem hún gerir venjulega!! Áttum við bara að vita þetta?!! En við komumst þó heim á endanum og mér var mjög kalt, var byrjuð að klæða mig í ullarvettlinga á tærnar á leiðinni, þær voru eiginlega frosnar, var bara í nælonsokkum og opnum skóm!!
Hey ég var að kaupa mér geðveika kápu sem ég er geggjað ánægð með, hún er svona svört og síð ullarkápa:) Keypti mér svo strigaskó um daginn og svo keypti ég mér óvart peysu og húfu í gær, ég sem ætlaði að spara.. en mig vantaði reyndar húfu og peysan ef sjúklega flott! Fíla hana í tætlur! Svona þröng soldið síð svört rúllukragapeysa og það er geðveikt flott að vera í einum kjól sem ég á utan yfir :) Elska hana!!
Kom heim á tangan áðan með Eyþóri, ætlum að fara í réttir og Eyþór í göngur, ég nenni ekki í göngur en ætli maður kíki ekki í réttirnar í kuldanum.. Þarf annars mikið að læra
Jæja ég er að hugsa um að fara að stytta gallabuxurnar mínar fyrst ég er heima hjá mömmu saumakonu!! :)
Nýjustu fréttir af mér;)Steinunn Eðvaldsdóttir
Jæja ég ætlaði aðeins að láta vita að ég væri til, hef ekki bloggað í allt sumar![]()
Af mér er ýmislegt að frétta:
Vann og lærði mikið í sumar, fór á ættarmót, djammaði, fór til Benidorm og djammaði meira .. já og verslaði mikið og varð brún! en þetta sumar var fljótt að líða, og nú er skólinn bara byrjaður![]()
Mér líst rosa vel á skólann og held að þetta verði mjög gaman, er samt soldið stressuð, þetta eru svo þykkar bækur og flestallar á ensku og svo miklu erfiðara en í fjölbraut! En maður mun bara gera sitt besta;)! Ég er í mörgum skemmtilegum kúrsum núna eins og félagsfræði, sálfræði og heimspeki og svo er líffærafræðin eflaust skemmtileg en örugglega pínu erfitt að læra latnesku heitin á öllum þessum líffærum! Mér líst allra síst á lífefnafræðina, held að hún verði erfiðust.
Er annars búin að kynnast alveg fullt af skemmtilegu fólki sem er með mér í bekk, margar skemmtilegar stelpur í þessu og svo eru 5 strákar, ég segi nú bara greyin þeir að vera þarna með öllum þessum stelpum!
Búin að vera í löngu helgarfríi þessa helgina sem byrjaði á fimmtudaginn, fór í partý á Hressó á fimmtudaginn í tilefni nýrrar heimasíðu stúdenta, það var ágætt, soldið leiðinlegt að ég þekkti nákvæmlega engan nema Sólveigu sem kom með með mér en hljómsveitin Dalton stóð sig vel! Fór svo í nýnemaferð í gær, sem var alveg geggjað skemmtilegt! Byrjuðum á að mæta í Eirberg þar sem við fengum svona hjúkkudæmi í hárið og bjór og sonna;) svo vorum við keyrð á tveggja hæða rauðri sight seeing rútu útí sveit þar sem við fórum í leiki og svona;) svo var endað á tónleikum og eftir það var skellt sér niðrí bæ:)
Annars erum við náttla flutt í Keflavíkina ég Júlli og Eyþór..:) Það er alveg ótrúlega fínt bara, rosa fínar þessar íbúðir hérna og náttla svo ódýrt! Maður er samt ekki vanur að hafa endalausar flugvélar í kringum sig, alltaf flugvélar að fljúga hérna rétt yfir að fara að lenda eða taka af stað, soldið merkilegt. En já við erum búin að koma okkur vel fyrir hérna ég og Júlli, búin að kaupa okkur sófa og sófaborð, mamma hans og pabbi gáfu okkur rosa gott rúm í útskriftar og afmælisgjöf og mamma og pabbi gáfu okkur ryksugu:) Allir svo góðir við okkur
Fórum á Ljósanótt hérna í Keflavík um síðustu helgi sem var bara mjög gaman, rosa margt að gerast í bænum en laugardagskvöldið stóð upp úr, þá voru hljómsveitir og söngvarar á stóru sviði og þarna voru víst um 40 þúsund manns að fylgjast með! Þarna voru Garðar Corters að syngja, Ljótu hálfvitarnir, Raggi Bjarna, Jógvan og fleiri og svo var alveg geggjuð flugeldasýning á eftir, ég hef bara aldrei séð eins flotta flugeldasýningu! Svo á sunnudaginn ætluðum við Júlli að fara á ókeypis tónleika uppá velli með Páli Rósinkranz og gospelkór Reykjavíkur en það voru svo geðveikt margir sem mættu að við fengum ekki sæti þannig við urðum að hætta við og í sárabót fórum við bara á rúntinn til Grindavíkur og kíktum í bláa lónið, ekkert smá flott þar, hef aldrei séð það fyrr, næst fer ég sko oní! fórum líka í einhvern lítinn bæ sem ég vissi ekki einu sinni að væri til sem er hérna rétt hjá vellinum og heitir Hafnir, svo fórum við líka á brúnna milli heimsálfa sem er rétt hjá Grindavík og rosalega sérstakt eitthvað
Svo margir í bænum núna sem ég þekki, Lilja, Solla, Berlind og Íris allar komnar í bæinn að vinna eða í skóla og svo eru margir í háskólanum sem ég þekki frá Akranesi og fleira.. mjög gaman hvað maður hittir marga eitthvað!
En ég ætla að segja þetta gott í bili, er orðin alltof ítarleg í þessu svo fólk nennir varla að lesa þetta allt!
Úje góða veður!Steinunn Eðvaldsdóttir
Halló halló!Hér kemur punktablogg:
- Veisluhelgin afstaðin og tókst hún með eindæmum vel, reyndar soldið langt síðan hun var
- Rakel fékk margt fínt í fermingargjöf, t.d. hest!
- Svaka afmælisveisla hjá Ásdísi, fékk margt fínt og mikið hoppað á trampólíninu
- Djammhelgi seinustu helgi
- Útskriftarpartý hjá Ásu, Ásdísi, Ólöfu og Vésteini á föstudaginn
- Út að borða í tilefni útskriftar Eyþórs í Rvk, pabbi bauð!
- Hitt Írisi og djammað með henni niðrí bæ á Sólon, Steinunn var þunn síðan kvöldið áður, hóst!
- Búið að vera geggjað veður!
- Maður bara að taka lit!
- Kidda að fá hvolp í dag;)
- Ég er flutt heim til foreldra Júlla aftur sem er voða næs, en auðvitað saknar maður að standa á eigin fótum og litlu sætu íbúðarinnar
en vonandi förum við að búa aftur í haust - Ég alltaf á kvöldvöktum og hitti voða fáa !
- Allir á bíladaga næstu helgi nema ég, ég er að vinna
- Jónsmessuhátíð á Hofsósi helgina eftir?
- Ég fékk enga til að koma með mér til útlanda í staðinn fyrir Sunnu svo ég fer ein með strákunum til Benidorm í júlí!
- Mamma mín í Danmörku í 27 stiga hita!
- Ætla að láta þetta gott heita
- Þætti vænt um ef þeir sem eru að lesa þetta myndu kommenta, eða eru kannski allir hættir að lesa blogg?
- Steinunn kveður með von um að sólin haldi áfram að skína!
